4.3.06

Mér dettur ekkert í hug...

Um hvað skrifar maður þegar maður er hugmyndalaus? Þetta er ljóta ástandið, ég hef álíka margar hugmyndir um hvað ég eigi að skrifa og ég hef yfirleitt þegar ég leita að jólagjöfum. Núll! Þetta er ekki gott ástand. Raunar er þetta kannski ekki svo skrýtið því það er í raun frekar lítið að gerast þessa dagana, helst að það sé merkilegt hvað það er mikill vetur hér, snjóar upp á hvern einasta dag.

Jú, annars; sandalarnir mínir eru að hrynja í sundur. Þeir eru átta ára gamlir og kostuðu 200 krónur (íslenskar) í Portúgal. Fleira er ekki í fréttum...