Fimmtugasta færslan!
Bloggið mitt á afmæli, það er orðið fimmtíu færslna gamalt. Þar með er ég kominn með fleiri færslur en gera má ráð fyrir að meðal eymingjabloggari (þ.e.a.s. ekki Hildigunnur stórtónskáld:)) skrifi á öllum sínum ferli (og oft á nokkrum árum). Kannski næ ég að komast upp í fjegurhundruðogseytján færslur (ég varð að skrifa þetta fyrst ég var búinn að skrifa eymingi!). Þá verður fjör! Eða kannski ekki.
Vissuð þið það að ef maður tekur meðaltal af bylgjulengd allra ljóseinda í Alheiminum þá kemur í ljós að Alheimurinn er grænn. En samt eru ekki til neinar grænar stjörnur.
Vissuð þið það að ef maður tekur meðaltal af bylgjulengd allra ljóseinda í Alheiminum þá kemur í ljós að Alheimurinn er grænn. En samt eru ekki til neinar grænar stjörnur.

<< Home