12.3.07
Það er að segja: Ég er búinn að starta annarri bloggsíðu og ætla að nota hana framvegis. Ég fékk einfaldlega nóg af þessu kommentabrasi svo þegar ég sá nýju síðuna hennar Hildigunnar ákvað ég að prófa hvort ég fyndi ekki eitthvað sem mér litist á hjá sama síðugerðarmanni (húrra fyrir síðugerðarmanninum!). Því er það svo að gamla síðan (á blogspot) verður ekki uppfærð frekar en henni verður þó haldið við ef einhvern skyldi fýsa að lesa yfir gömul komment (sem ég gat ekki fært á milli). Í því skyni verður linkað á hana frá nýju síðunni (og til baka). En nýja síðan er hér. Því gæti verið góð hugmynd að uppfæra linka á mig. Svo URLið sjáist örugglega líka þá er það hér: http://jongudm.wordpress.com
Vá, hvað það er erfitt að koma sér í fótboltaform!
Ástæðan: Meiðsli. Aftur og aftur og aftur. Nýjasta afrekið er að togna framan á læri í upphitun (já ég veit að það þýðir of þjösnaleg upphitun;)). Svakalega skemmtilegt. Annars á þetta ekki að þurfa að koma neitt á óvart því átökin sem líkaminn þarf að standast í fótbolta eru svo ólík öllu öðru sem ég hef gert í mörg ár. En skrokkurinn lærir þetta smám saman eins og annað.
11.3.07
10.3.07
Stórkostlegur fótboltaleikur (ahem...)
Ég spilaði nú raunar ekki svo það er ekki hægt að kenna mér um að fyrirsögnin er með allra mestu öfugmælum sem sjást:) Ég held bara að ég ætti alveg að geta fengið að spila þegar mótið byrjar, ég er a.m.k. ekkert mikið verri en sumir sem spiluðu allan leikinn (bara aðeins verri...). Við sjáum hvað setur:)
9.3.07
Zzzzzzzzzz...
Í morgun fékkst afar góð mæling á það nákvæmlega hversu erfitt er að vakna þegar maður er að tala í símann (eða raunar var það nú Skype) til 2:30! En svo varð raunar dagurinn ágætur þegar ég sá veðrið því það var bara fínt, búið að hlýna mikið frá síðustu dögum og þurrt (til tilbreytingar). Kannski kemur einhverntíma vor...
8.3.07
7.3.07
Ég er búinn að vera...
Þetta var eitthvað það alerfiðasta sem ég hef nokkurn tíma lent í! Hellirigning alla æfinguna og hlaupið á fullu (það fannst mér a.m.k.;)) allan tímann. Ég var hættur að geta hitt boltann undir það síðasta! Usss... En það verður víst að viðurkennast að jafnvel á meðan nóg var af úthaldinu sást það greinilega að það er ansi langt síðan ég spilaði fótbolta af einhverri alvöru!
Það er víst rétt að það komi fram að ég get nánast ekkert kommentað, ég veit ekki hvort öðrum gengur eitthvað betur eða hvort sumir eru bara þrjóskari en ég:) En það er semsagt þessvegna sem ekki kemur endilega svar við öllum kommentunum sem svo mikið var haft fyrir því að koma á framfæri, ekki það að ég nenni ekki að svara;)
Það er víst rétt að það komi fram að ég get nánast ekkert kommentað, ég veit ekki hvort öðrum gengur eitthvað betur eða hvort sumir eru bara þrjóskari en ég:) En það er semsagt þessvegna sem ekki kemur endilega svar við öllum kommentunum sem svo mikið var haft fyrir því að koma á framfæri, ekki það að ég nenni ekki að svara;)
Nú er sko öllu tjaldað til við að koma sér í gott form!
Ég var sko stoltur af sjálfum mér í morgun! Vaknaði rétt upp úr sjö og fór beint út að hlaupa, í hellirigningu. Eftir þetta stórskemmtilega kvef (ég er raunar enn nefmæltur, rámur og almennt ekki söngfær) verður maður nú að setja allt á fullt ikk'? Og svo er fótboltaæfing í kvöld þar sem ég mun reyna að láta ljós mitt skína svo ég fái nú eitthvað að spila á laugardaginn. Ætli sé ekki vænlegast til árangurs að reyna að sannfæra þjálfarann um að spila íslenskan bolafótbolta. Það kann ég allavega...
6.3.07
Þetta er algjört ófremdarástand!
Það er ekki einleikið hvað þetta kommentakerfi er til mikilla vandræða þessa stundina. Ég er búinn að eyða heilmiklum tíma í allskonar debug vitleysu á síðunni hjá enetation og allt kemur fyrir ekki. Eru einhverjir fleiri í svona vandræðum með þetta kerfi eða er það bara að hrekkja mig? Ég gerði tvær tilraunir á stuttum tíma til að kommenta á síðustu færslu, þær sjást í talningunni en ekkert birtist...
5.3.07
Og nú fréttir af sjálfum mér í fótbolta...
Ekki alveg á sama standard og sá fótbolti sem talað var um hérna síðast (þótt það komi nú fyrir að ég efist um að Leeds vörnin yrði mikið verri með mig í henni miðri) en það er komið að miklum tímamótum: Það er æfingarleikur á laugardaginn og allt bendir til að ég verði í liðinu (ef ég slasa mig ekki á æfingu á miðvikudaginn, og þar sem æfingin núna áðan var sú fyrsta þar sem ég hef ekki náð mér í meiðsli af einhverju tagi þá getur nú allt gerst). Stuð!!
4.3.07
Ætti maður kannski að fara út að slást?
Áðan sá ég auglýsingu í glugganum á búðinni sem allar rúðurnar voru brotnar í fyrir nokkrum dögum þar sem var auglýst eftir sjálfboðaliðum til að þvælast fyrir mótmælendunum þegar þeir ætla að brjóta eitthvað eða kveikja í því. Maður átti að mæta einhversstaðar í miðri Kristjaníu (!) til að vera vegatálmi fyrir blindfulla, útúrreykta vitleysinga. Verði þeim að góðu segi ég nú bara!
3.3.07
AAAAAARRRRRRGGGHHHHH!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Það sem mig langar að skrifa núna er alveg ROSALEGA langt frá því að vera prenthæft...
Það er undarlegur fótboltadagur í dag!
Það gerist yfirleitt aðeins tvisvar sinnum á ári (getur farið upp í fimm til sex skipti með rosalegum tilviljunum) að ég haldi með Liverpool í fótboltaleik en í dag er einn slíkur dagur. Ástæðan: Þeir eru að spila við ManUre (einnig þekkt sem Manchester United). Ég held alltaf með andstæðingum þess ömurlega svindlaralýðs, hvað sem mér finnst um þá (andstæðingana) aðra daga ársins (ég myndi þó trúlega gera undantekningu ef þeir mættu KR, en það er svo ólíklegt að það þarf ekkert að velta því fyrir sér;)). Í öðrum fótboltafréttum er það að Leeds spilar við Sheffield Wednesday og þeir VERÐA að vinna ef þeir ætla að eiga raunhæfan möguleika á að bjarga sér frá falli í það sem einu sinni hét þriðja deild (var svo breytt í aðra deild þegar efstu deildinni var breytt í úrvalsdeild og fyrir tveimur árum var svo ákveðið að næst efsta deildin skyldi heita Championship og deildin þar fyrir neðan heitir þá fyrsta deild!)! Ekki gott mál...
2.3.07
Það er aldeilis!
Það er ekki á hverjum degi sem maður sér brunnin (og bráðnuð ofan í götuna) bílhræ á förnum vegi í Köben en það sá ég í dag! Á Amagerbrogade! Og allar rúður brotnar í fáránlega rándýru húsgagnaversluninni sem er þarna rétt hjá. Lesendum til upplýsingar þá skal tekið fram að í þeirri búð fást meðal annars stólar á 700.000 krónur (íslenskar), borð á annað eins og sófar fyrir MIKLU meira. Ætli fólki hafi ekki bara blöskrað verðlagið...
1.3.07
Endemis kommentakjaftæði!
Ég veit ekki hversu margir hafa tekið eftir því að kommentakerfið mitt er enn einu sinni gengið af göflunum (hvað það var að vilja gangandi á göfflum veit ég ekki en allt um það) og neitar nú alfarið að telja kommentin sem í það eru skrifuð. Þegar þetta er ritað eru þrjú komment við síðustu færslu en kerfið sýnir ekki eitt einasta (fyrr en maður gáir). Enn ergilegra er það að það virðist gríðarlega erfitt að fá hvert komment fyrir sig til að fara rétta boðleið í kerfinu, sem dæmi má nefna að kommentið mitt við síðustu færslu kostaði fjórar tilraunir. Þetta virðist alltaf loða við þetta enetation kerfi en ég verð að viðurkenna að bæði nenni ég ekki að standa í því að skipta um og svo hef ég enga trú á því að það sé neitt minna vesen á öðrum kerfum, bara öðruvísi vesen. Svona er það alltaf með þetta internet. Drasl!
26.2.07
Græna peysan mín
Ég á alveg frábæra peysu. Þessa peysu fékk ég í jólagjöf frá Guðnýju sem prjónaði hana í París. Hún er í misdökkum grænum litum og alveg eins og ég í laginu (sem er gríðarlega mikilvægt, spyrjiði bara Snúð í Múmínálfabókunum...) og síðast en alls ekki síst þá er hún rosalega hlý og notaleg. Og það kemur sér sko vel þegar hálsbólgan er orðin að allsherjarkvefi. Ég er farinn að hita te...
24.2.07
Hóst, hóst...
I have a hálsbólg... Og í tilefni af því hefur afskaplega lítið verið gert í allan dag. Ég æfði mig þó aðeins en að öðru leyti hefur það aðallega verið tölvan sem hefur fengið athygli í dag. Ég er þó ekki einn um það að halda mig innandyra því það er "allt á kafi í snjó" í Köben (lesist 20-30 cm jafnfallinn snjór) og það hefur leitt til þess að strætisvagnar ganga ekki nema í skötulíki, lestarkerfið fór í klessu og svo virðast ruslabílar ekki geta keyrt í snjó (þið getið ímyndað ykkur hvað haugurinn fyrir utan kollegíið er fallegur...). Og svo kom þessi líka glæsilega frostrigning í morgun. Og þá fyrst varð nú fjör á götunum...
16.2.07
Steeeeeeeik!!!!!
Ég var að borða steik! Hún var góð:) Og STÓR!!! Þannig er sko mál með vexti að við Guðný fórum út að borða áðan á Reef'nBeef sem er ástralskur veitingastaður hér í Köben. Þar eru í boði kengúrur, strútar, krókódílar og alveg stórkostlegt nautakjöt. Og svo lesendur geti nú fengið vatn í munninn þá skal það tekið fram að í forrétt borðaði ég túnfisksteik með sesamfræjum, engifer, ólífum og kapers, í aðalrétt 600 gramma nautasteik sem ég hljóp á eftir út um allt hús með gaffalinn á lofti, og í eftirrétt var svo hin óendanlega snilld: Death by chocolate!!!
NAMMM!!!!!
NAMMM!!!!!
1.2.07
Sungið í sturtunni...
Ég hef aldrei verið mikið fyrir að syngja í sturtunni en gerði það samt núna áðan. Ég var nefnilega í söngtíma fyrr í dag og það var náttúrlega nauðsynlegt að æfa það sem var gert í tímanum...
28.1.07
Og aftur hef ég afsökun til að skrifa um Guðnýju!
Nú hefur bæst við nýr linkur því Guðný er byrjuð aftur að blogga eftir langt hlé! Klöppum fyrir því!!!!!
26.1.07
Bara 10 dagar...
Það eru bara 10 dagar þar til Guðný kemur í heimsókn:) Hún er að fara að spila á tónleikum og það er auðvitað hin fullkomna ástæða til að vera tvær vikur í Kaupinhafn. Ég hlakka til:)
25.1.07
Stjörnuskoðunarferðin ógurlega...
Svo lesendur frá orgelstelpunni fari ekki fýluferð er víst rétt að hér komi fram hvað gerðist þegar þrír vaskir Íslendingar fóru út að skoða stjörnur í kóngsins Kaupinhafn í gærkvöldi. Um leið og lagt var af stað frá kollegíinu (hvar eigandi stjörnukíkisins er til heimilis) fór fólki að verða kalt svo gengið var afar rösklega að vatni í nágrenninu (engin götuljós úti á vatninu = betra myrkur = stjörnur sjást betur). Þar var kíkinum komið fyrir og hófst undirritaður handa við að reyna að fá hann til að sýna viðstöddum eitthvað annað en myrkur (stjörnur til dæmis), á meðan aðrir nærstaddir skulfu sér til hita. Skemmst er frá því að segja að þær tilraunir báru engann árangur og var því gengið til baka (rösklega, í þeirri von að þiðna á leiðinni) og ákveðið að reyna aftur síðar. Talið er að meirihluti viðstaddra hafi farið beint undir sæng þegar heim var komið.
Endir.
Endir.
22.1.07
Nú verður gerð tilraun:
Stjörnuskoðun út um gluggann...
Allt kollegíið á eftir að halda að ég sé að rýna inn um glugga hjá fólki:P
Allt kollegíið á eftir að halda að ég sé að rýna inn um glugga hjá fólki:P
20.1.07
GOOOOOOOOOOLF!!!!:)
Ég fór í golf áðan í því stórmerkilega fyrirbæri "Copenhagen Indoor Golf Center". Þetta er gömul skipasmíðastöð eða eitthvað slíkt sem hefur verið breytt í stærstu innanhúss golfæfingaaðstöðu í heimi! Því verður víst seint haldið fram að þetta líti vel út en aðstaðan er góð, að vísu slær maður í net en það er 130m frá svo maður sér boltann fljúga aðeins áður en netið tekur við honum. Og það var ekki laust við að ég sæi boltana sveigja í hinar undarlegustu áttir þegar ég veifaði stóru sleggjunni af öllu afli. Ég hefði sennilega mátt eiga von á að þurfa að leita lengi í þeim undarlegu frumskógum sem yfirleitt umlykja golfvelli, fullir af ósýnilegum dýrum sem stela golfboltum...
18.1.07
Mikið var!
Í dag komst ég að í æfingaherbergi hér á kollegíinu í fyrsta skipti í tæpa viku! Og það sem meira er þá hefur það verið sama manneskjan (eða öllu heldur íbúðin) sem hefur verið skráð fyrir báðum herbergjunum frá 8:00 til 24:00 allan tímann! Venjulega er allt tómt, það heyrir til undantekninga að ég komist ekki að strax og geti valið herbergi. Viðkomandi ætti a.m.k. að vera kominn í gott form núna!
17.1.07
Nú kemur í ljós hvað ég endist lengi...
Ég er að fara á aðra fótboltaæfingu í kvöld! Eftir þá fyrstu var ég gjörsamlega að drepast úr harðsperrum í þrjá daga á eftir svo þetta á klárlega eftir að verða mjög athyglisvert. Fyrir þá sem ekki vita þá hefur mín fótboltaiðkun nánast eingöngu takmarkast við sófadeildina undanfarin 10 ár svo ég þarf að vinna aðeins upp...
En fótbolti er bara svo skemmtilegur:)
En fótbolti er bara svo skemmtilegur:)
8.1.07
Gleðilegt ár, þó seint sé!
Það má heita óskrifuð og óformleg regla (nema hvað nú er ég að skrifa hana niður...) á þessari síðu að ég uppfæri eiginlega bara í Danmörku. Þegar ég er á Íslandi hitti ég fólk í eigin persónu og get sagt fréttir augliti til auglitis og á ferðalagi annarsstaðar er ég upptekinn við að vera á ferðalagi. Það ætti því ekki að koma nokkrum manni á óvart (a.m.k. ekki þegar þetta hefur verið lesið) að ég lét þessa síðu alveg eiga sig á meðan ég var á Íslandi yfir jólin. En nú er ég kominn til Danaveldis á ný og hef aftur hafist handa við að gammablossast af miklum móð. Og í framhaldinu hefst svo kórsöngur, fótbolti, golf, hlaup og stjörnuskoðun að ógleymdu trompetspili að sjálfsögðu (það fór nú ekki í mikið frí). Og ég er örugglega að gleyma einhverju...
13.12.06
Ái!
Ég er með hryllilegar harðsperrur. Ég tók nefnilega upp á því í gær að fara á fótboltaæfingu hjá Øresundskollegiets Fodboldklub og taka á öllu sem ég átti (til þess að vera ekki langlanglanglélegastur!) í skítakulda sem gerði strax að engu allt sem hét upphitun. Ég er ennþá algerlega búinn að vera! Þetta félag er með sex (mjög misgóð) lið í Kaupmannahafnarhluta dönsku utandeildarkeppninnar svo það ættu að vera sæmilegir möguleikar á að fá eitthvað að spila einstöku sinnum. Nú er bara að sjá hvernig gengur!
11.12.06
Spurning:
Hvað gerist þegar trompetleikara og organista er sleppt lausum í stórri nótnabúð í París?
Svarmöguleikar:
a: Þau kaupa ekki neitt, bara skoða.
b: Þau kaupa eitt lítið verk.
c: Þau kaupa nokkur lítil verk eða kannski eitt stærra.
d: Þau kaupa alla búðina...
Aukaspurning:
Hvern langar að búa í íbúðinni beint fyrir ofan orgelið (Danska kirkjan í París er með íbúðum fyrir starfsfólk kirkjunnar) þegar þau sleppa sér alveg í að spila í gegn um bunkann?
Svarmöguleikar:
a: Þau kaupa ekki neitt, bara skoða.
b: Þau kaupa eitt lítið verk.
c: Þau kaupa nokkur lítil verk eða kannski eitt stærra.
d: Þau kaupa alla búðina...
Aukaspurning:
Hvern langar að búa í íbúðinni beint fyrir ofan orgelið (Danska kirkjan í París er með íbúðum fyrir starfsfólk kirkjunnar) þegar þau sleppa sér alveg í að spila í gegn um bunkann?
6.12.06
Tónleikar:) Og París:)
Nú er ég að leggja af stað í Samuelskirke þar sem Staka og Mpiri (færeyskur kór) halda sameiginlega jólatónleika klukkan 20:00. Og svo þarf ég að fara heim og pakka niður því í fyrramálið flýg ég til Parísar og ætla að vera þar yfir helgina:) Guðný á nefnilega afmæli á morgun svo það er alveg nauðsynlegt að drífa sig í heimsókn:):):):)
