23.2.06

Grænmeti er ómeti!

Loksins er kominn af stað bloggleikur að mínu skapi. Þessi leikur gengur út á það að gera lista yfir vondan mat (að mati hvers bloggara fyrir sig að sjálfsögðu). Það virðist ekkert þurfa að klukka í þessum leik svo ég læt bara vaða án þess að hafa verið klukkaður og ennfremur án þess að klukka nokkurn mann. Minn listi er svona (nokkurn veginn í röðinni verst efst, fyrstu tvö eru í það minnsta klárlega í réttri röð):

PÚRRA!! (Fengi ég einhverju um það ráðið yrði því andskotans illgresi vísað úr fæðukeðjunni fyrir fullt og allt!)
Kúrbítur (Dragbítur, nábítur og fleira síður prenthæft.)
Laukur og frændgarður hans allur (Steiktur á pulsum er í lagi, sleppur í lasagna og slíku ef hann er MJÖG fínt saxaður, alveg niður á nanoskala og steiktur í algjört mauk. Annars ekki.)
Tómatar (Bjakk, gallsúrt.)
Kál (Með nákvæmlega þremur undantekningum; blómkál (flottur fraktalstrúktúr, learn while you eat), brokkólí (sama) og rósakál. A.t.h. allt soðið (eða hitað á annan hátt).)
Súrmatur (Bjakk, gallsúrt.)
Hnetur og möndlur (Eins og að borða tré.)
Hrásalat (Af augljósum ástæðum eftir þennan lestur.)
Og örugglega eitthvað fleira sem ég er að gleyma...

Þegar ég hugsa um mat þá sé ég fyrir mér blóðuga steik. Ekki heysátu.