Hvað er ég nú búinn að koma mér út í?
Í kvöld um miðnætti mun ég þreyta frumraun mína sem barþjónn! Í Tívolí! Þessi undarlega staða er komin upp vegna þess að í Tívolí verður haldið þorrablót Íslendingafélagsins og íslensku kórarnir hafa tekið að sér að sjá um barinn í fjáröflunarskyni. Þetta verður eitthvað skrautlegt held ég, sérstaklega þar sem ég veit ekki hvað helmingurinn af drykkjunum heitir og hef aldrei á ævinni blandað kokteil. En við sjáum til, þetta getur nú ekki verið mjög flókið.
Í öðrum fréttum er það helst að um daginn fann ég hákarl í póstkassanum mínum. Hann bíður eftir partýinu 18. febrúar þegar allir kollegíisbúar munu vaða hver í annars herbergi og eta og drekka allt sem þeir finna. Verði þeim að góðu:)

<< Home