Kerfið komið í lag?
Ég veit ekki hvort þið tókuð eftir því en blogger át eina færsluna mína. Ég var semsagt ekki að fara að dæmi ónefnds sjálfstæðismanns og ritskoða eftirá þegar skoðanirnar pössuðu ekki lengur (og reyna svo að halda því fram að hann hafi bara verið að gá hvort fólk væri að fylgjast með þegar hann var gripinn) heldur var þetta kerfiskjaftæði. Skamm blogger! Nú virðist hann vera kominn í lag aftur en færslan sem hann át er trúlega alveg horfin. Það verður bara að hafa það:(

<< Home