6.2.06

Stórátak!

Dagurinn hefur að mestu farið í að taka til. Ég er ekki búinn en ég nenni ekki að halda áfram í dag. Ég sé líka fyrir endann á þessu, ég klára í næstu törn. Á morgun byrjar svo blokk 3 með fyrirlestri í Advanced Cosmology (Hélduð þið kannski að þið væruð laus við cosmologíubrandara? Aldeilis ekki! En øl! *stígvél flýgur yfir barborð*) klukkan 9:15, svo þarf ég að tala við vejleder um verkefnið mitt einhvertímann á morgun eða hinn. Og svo þarf ég að fara og kaupa mér bókahillu, skoða prentara og snatta ýmislegt smotterí sem hefur setið á hakanum (ái!) í langan tíma. Og svo er Stökuæfing þar sem við erum meðal annars að syngja lag Hróðmars Inga við Ferðalok eftir Jónas Hallgrímsson (svakalega flott, alveg ótrúleg músík) og lag í kolklikkuðum pólýritma (en ekkert minna flott fyrir það!) eftir Snorra Sigfús Birgisson við ennþá klikkaðri texta eftir Æra Tobba! Textinn er þvílík heimsklassa vitleysa að það er alveg nauðsynlegt að fá einhvern til að lesa allt kvæðið með þrumuraust (og grafalvarlegum svip) áður en lagið er sungið!