Framkvæmdir í fullum gangi
Þar sem kommentin á síðustu færslu voru komin út í rifrildi um pólitík ákvað ég að setja inn nýja færslu áður en fjandinn yrði endanlega laus og síðan færi niður í logum. Og ég sem ætlaði bara að benda á athyglisverða staðreynd úr stjarneðlisfræði!
Ég var annars að klára að setja upp bókahillu sem ég keypti í IKEA fyrir nokkrum dögum og fór með heim í strætó og lest. Það var horft á mig eins og ég væri skrípi með útfjólublátt hár og íssósu á nefinu auk þess sem ferðin tók rúman klukkutíma en ég sparaði líka u.þ.b. 50 krónur. Ég var hæstánægður með það. Ég er nirfill. Svo kom að því að setja gripinn saman en það geri ég alltaf á sama hátt. Fyrir rúmu ári varð til hjá mér sú hefð að húsgögn set ég saman með Wagner í botni. Í BOTNI! Það var byrjunin á Sigfried sem varð fyrir valinu að þessu sinni þar sem ég er hvort sem er að vinna mig í gegnum nýju glæsilegu upptökuna mína af Niflungahringnum. Hver vill vera með í 15 tíma maraþoni að hlusta á allt saman í einum rykk?

<< Home