9.2.06

Nýjasta græjan!

Ég vil bjóða Canon PIXMA MP 150 velkominn til starfa en hann ætlar að sjá um að prenta, skanna, ljósrita og faxa (með aðstoð frá tölvunni) allt sem mér dettur í hug. Ég held ég hafi bara gert nokkuð góð kaup, hann kostaði ekki nema 800 DKK.

Það er annars merkilegt hvað ég er góður í að vera með mikið vesen í tölvubúðum. Ég hef örugglega valdið einum starfsmanninum ansi góðum hausverk á meðan hann var að hringja út um allt, á verkstæðið, í umboðið, í "helpdesk" (eða helldesk, miðað við hvernig það gekk) og að lokum í Canon sjálfan held ég bara, til að komast að því hvort prentarinn virkaði með Linux. En eins og allir vita þá er Linux besta stýrikerfi í heimi og allar mínar græjur verða að geta virkað með því! Að lokum fannst þýsk netsíða þar sem hægt er að fá Linux driver fyrir þennan prentara og þá loksins var ég sáttur og hætti að vera með vesen. Ég geri ráð fyrir að maðurinn æði út æpandi ef ég læt sjá mig í þessari búð aftur:) En nú get ég prentað og faxað, sem var nú aðal tilgangurinn með öllu saman.