Kannkat þat lasta
Í dag kom loksins inn síðasta einkunnin sem ég þarf að senda lánasjóðnum svo ég fái einhvern aur! Nú skal því fagnað með miklum tilþrifum, meðal annars heilsað upp á hann Jensen sem rekur buffhús og etið eitt naut. Naut eru góð, sérstaklega ef þau baula og sprikla á diskinum! Var því til áréttingar kveðið til forna og hefir varðveist grafið í nautsleður:
Sá sem etur segir:
Geirr í griðungs sárum gnast,
kannkat þat lasta
Sá sem etinn er svarar:
Horn á hreðjar karli hvasst,
kannkat þat lasta
(Stolið, stælt og staðfært úr Gísla sögu Súrssonar)
Góðar stundir!
Sá sem etur segir:
Geirr í griðungs sárum gnast,
kannkat þat lasta
Sá sem etinn er svarar:
Horn á hreðjar karli hvasst,
kannkat þat lasta
(Stolið, stælt og staðfært úr Gísla sögu Súrssonar)
Góðar stundir!

<< Home