30.1.06

Stórtíðindi úr Danaveldi!

ÞAÐ ER GÓLF Í ÍBÚÐINNI MINNI! Þessi merka (og löngu gleymda) staðreynd uppgötvaðist þegar leit stóð yfir að batteríum sem mig rámaði í að hafa keypt fyrir margt löngu og hugðist nú nota til að blása nýju lífi í afar rafeindahungraðan geislaspilara sem ella hefði gefið upp öndina (og ef einhverjir badmintonspilarar glotta nú yfir því að gefa upp önd í heilu lagi í stað venjulegs fjaðrabolta þá eru þeir ekki einir (*glott*)). Eftir nokkurra tíma ruðning með Caterpillar jarðýtu af stærstu gerð fundust batteríin um 130 cm undir yfirborðinu en einnig fannst undarlegt lag af viðarklæðningu. Klæðning þessi reyndist liggja lárétt (innan skekkjumarka) og varð ekki betur séð en að hún teygði sig út í öll horn íbúðarinnar. Frekari jarðvegsrannsóknir verða framkvæmdar fljótlega en fyrstu niðurstöður benda til þess að þetta sé gólfið sem undirritaður svaf á áður en fjárfest var í rúmi. Fljótlega eftir það hvarf gólfið og var talið af en virðist nú aðeins hafa falið sig.

Ps. Fyrir viðkvæmar sálir skal það tekið fram að pistill þessi er ritaður í svonefndum ýkjustíl en það merka stílbragð er gjarnan notað af rithöfundum sem vilja skemmta lesendum sínum og bloggurum sem vilja hrekkja mæður sínar.