Æfingaaðstaða
Ég var að senda póst á Jón í Jónshúsi (nei, ekki þann Jón!) til að athuga hvort ég geti fengið að æfa mig þar. Það kæmi sér mjög vel því nú virðist vera búið að taka rafmagnið af því sem var æfingaaðstaðan hér og ekki nokkur leið að nota hana lengur. Og ekki fer ég að spila á piccolotrompet inni hjá mér eða hvað? Þá yrði mér trúlega hent út úr blokkinni í hvelli ásamt mínum þokulúðrum! Ég var einmitt mjög ánægður að fá íbúð á þessu kollegíi því hér var boðið upp á æfingaaðstöðu. Ég reyni að fá aðra íbúð næsta vetur, þetta gengur ekki svona til lengdar.

<< Home