Hefst nú lesturinn...
Ég var að ljúka við að prenta út helling af gammablossagreinum til að lesa fyrir verkefnið mitt, nú er bara að sjá hvort ég næ einhverntíma að lesa þetta allt saman! Planið er að lesa helling af greinum í mars til að velja hvaða módel ég ætla að prófa í apríl og maí.
Og prentarinn svínvirkar, þetta var fyrsta stóra prófið hans og hann fór létt með það. En nú heyrist mér stóri bunkinn sem ég var að prenta vera farinn að hlægja að mér, hann heldur að ég nái aldrei að lesa allt saman! Ég skal sko sýna honum...

<< Home