Músarrindlaleggir?
Ég borðaði skrýtinn kvöldmat áðan. Ég fann þennan fína poka með myndum af kjúklingum utaná í stórmarkaðnum og ákvað að skella mér á hann. Svo þegar ég opnaði pokann til að veiða upp nokkur stykki fyrir kvöldmatinn í kvöld komst ég að því mér til mikillar furðu að leggirnir og vængirnir voru svo litlir að mér datt helst í hug að þeir væru af músarrindlum! Kannski ég sé að ganga af göflunum í allri þessari cosmologíu þar sem minnsti lengdarskali sem tekur því að líta á er milljón ljósár og hópar með þúsund stjörnuþokum eru kallaðir korn?
Vísdómsorð dagsins: Á svæði umhverfis okkur sem nemur (1000...hundrað núll...000)*(það svæði Alheimsins sem við sjáum) er í mesta lagi einn segulmónópóll og árið 1986 fór hann gegnum segulmónópólanemann í Stanford. Eða kannski var tækið bilað. Í öllu falli stendur teljarinn á einum.
Back to the saltmines...

<< Home