25.1.06

Því er lokið!

Þá er þetta próf frá, blokk 2 búin og ég kominn í frí til 7. febrúar. Það var furðulegt að koma út úr miðsvetrarprófi í dæmigerðan jólasnjó, í lok janúar. Það var hundslappadrífa í morgun og öll tré hvít! Það mætti halda að það væru að koma jól. Og af því ég var að klára próf þá keypti ég mér geisladisk: Elverhøj eftir Friedrich Kuhlau. Kong Christian stod ved højen mast... Og það eru engin verðlaun í boði fyrir þann sem fyrstur nefnir myndina sem sú tónlist var notuð í því það eiga allir að vera búnir að sjá hana! Ef sú mynd væri notuð í dönskukennslu yrði öllu þessu væli um að danska sé leiðinleg eytt í hvelli.