14.1.06

Ekki er ég dauður úr öllum bloggæðum enn...

Í gær skilaði ég ritgerð sem ég hef verið að vinna að síðan ég kom aftur til Köben eftir jólafrí. Ég var búinn að ákveða að ég myndi fara aftur af stað með bloggið þegar ég hefði skilað henni en hvað gerist þá? Jú, netsambandið á kollegíinu velur föstudaginn 13. með fullu tungli til að liggja svo algjörlega niðri að ég gat ekki einu sinni lesið tölvupóst allan daginn, hvað þá gert eitthvað jafn flókið og að logga mig inn á blogger. En nú komst ég inn og þá dettur mér ekkert í hug til að skrifa. Annars hef ég svo sem nóg annað að gera, ég þarf að halda fyrirlestur á mánudaginn um sama efni og ég skrifaði ritgerðina um og svo er Staka að syngja í kvöld, ég þarf að vera kominn á æfingu klukkan fimm. Látum vér því ritræpu lokið að sinni.