5.12.05

Hvað á ég að tala um?

Ég er að reyna að ákveða hvað ég ætla að tala um á miðvikudaginn þegar kennarinn í Particle Cosmology ætlar láta alla halda fyrirlestur í 10 mínútur um eitthvað (að eigin vali)! Eina skilyrðið er að það tengist efninu sem búið er að fara yfir á einhvern hátt. Þegar það er búið ætlar svo allur hópurinn út á bar! Klukkan 14:00. Á miðvikudegi. Þetta gerist bara í Danmörku. Ég er að hugsa um að tala um kjarnasamruna en á eftir að ákveða það endanlega. Ég er með Beethoven 9. á fullu til að aðstoða við þessar vangaveltur.

Partýið í Svíþjóð var gríðarlegt stuð þrátt fyrir að ég hafi ekki þekkt nema þrjá veislugesti áður en ég kom á staðinn. Og svo þekkti ég raunar eina úr sjónvarpinu en það er nú ekki hægt að telja það með því hún þekkir mig ekki neitt, frekar en alla hina sem þekktu hana úr sjónvarpinu og virtust halda að þar með þekkti hún þá líka! Eini gallinn á partýinu var ægilegt magn íslensks dósapopps í hljómtækjum staðarins en það er kannski ekki við öðru að búast þegar allir veislugestir eru Íslendingar búsettir í útlöndum. Maturinn var frábær, hangikjöt með öllu sem við á að éta, og sá undirritaður ekki ástæðu til að halda neitt aftur af sér við átið (rop!). Enn frekari skemmtan hlaust svo af því að ég vann flösku af Old Spice í getraun! Ég vissi alltaf að það væri skynsamlegt að horfa á Clousau af mikilli athygli! Verst er að ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við verðlaunin. Einnig var flutt leikrit þar sem Jonas brilleraði í hlutverki dansks þjóns sem drap mann úr dönsku. Ekki get ég neitað því að mér þóttu skotin á dönskuna koma úr hörðustu átt, frá fólki sem býr í Svíþjóð!

En nú er fjórði kaflinn byrjaður og ég verð að hætta að bulla svo ég geti hlustað af athygli á snilldina.