22.12.05

Bloggað á Klakanum

Það er víst rétt að láta eitthvað í sér heyra í jólafríinu á Íslandi. Ég lenti um miðnætti aðfaranótt laugardags, daginn eftir las ég svo af blaði verkið sem ég spilaði með SÁ á tónleikum klukkan 5 og aftur á sama tíma á sunnudag. Alltaf gaman að æða inn á síðustu stundu! Tónleikarnir tókust þokkalega fannst mér, þó munaði litlu að illa færi þegar SUMIR gleymdu að endurtaka:) Nú er undirbúningur fyrir Stökutónleikana 27. des. kominn á fullt, plaköt út um allan bæ og ef einhver skyldi halda að ekkert yrði auglýst á þessari síðu þá er það misskilningur. Tónleikarnir verða í Langholtskirkju klukkan 8 (um kvöld:)) og kostar 1000 kall inn. Algjör spottprís og fyrir þúsundkallinn fást mjög skemmtilegir tónleikar.