Reiknareiknareikna....
Ég er alveg að verða búinn með reikniverkefnið mitt, alveg satt, og ég er alls ekki í tölvunni, það er bara rangur skilmysingur eins og maðurinn sagði... ég þarf að skila á morgun í Astronomisk Instrumentering. Þetta er raunar skítlétt, bara algebra, en það er víst betra að hafa reiknað einu sinni alla leið í gegn um módelið áður en maður fer að nota það í eitthvað. Þegar ég er búinn að skila þessu þarf ég bara að skrifa eina ritgerð (10 bls., skil í lok janúar) um þyngdarbylgjunema í geimnum og þá er þessi kúrs búinn.
Það er gott að hlusta á Intermezzo úr Cavalleria Rusticana með Fairey Brass Band þegar maður reiknar. Stórkostleg laglína og spiluð á soprano cornet, verður ekki betra.
Það er gott að hlusta á Intermezzo úr Cavalleria Rusticana með Fairey Brass Band þegar maður reiknar. Stórkostleg laglína og spiluð á soprano cornet, verður ekki betra.

<< Home