13.12.05

Að lokinni tónleikahelgi

Stökutónleikarnir á föstudaginn gengu bara nokkuð vel held ég megi segja. Í það minnsta virtust áheyrendur ánægðir. Heims um ból var tekið sem aukalag í fjöldasöng og fyrir það var ákveðið að nýta eitthvað af hljóðfæraleikarahjörðinni sem Staka hefur á að skipa, því var spilað með á orgel, horn og trompet. Á laugardag sungum við svo tvö lög á Nordatlantisk Julekonsert, þar sem auk okkar komu fram færeyskir, grænlenskir og tveir aðrir íslenskir kórar. Eftir þá tónleika var svo heljarmikið partý í færeyingahúsinu þar sem allir kórarnir komu saman, átu gríðarlega og drukku, og virtust vera að keppast við að yfirgnæfa hver annan. Staka vann með því að syngja "Ó mín flaskan fríða" í þrumandi fimmundasöng!

Í þessari veislu kom fram sú hugmynd að Staka endurtæki tónleikana á Íslandi milli jóla og nýárs, og skipti engum togum að allt var sett af stað í skipulagningu og er nú stefnt að því að tónleikar verði að kvöldi 27. desember í (enn sem komið er óþekktri) kirkju. Þeir sem ekki drifu sig til Köben á tónleikana á föstudag (hvernig sem á því getur staðið:)) geta því farið að hlakka til. Þetta varður kjörið tækifæri til að heyra í góðum íslenskum kammerkór sem annars heldur sig í Danmörku.

Annars er farið að styttast allverulega í það að ég fari heim í jólafrí, ég fer í loftið á föstudaginn klukkan 20:10 að staðartíma. Daginn eftir spila ég svo á jólatónleikum með Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna eitthvert verk sem ég veit ekki ennþá hvað er, eða hvaða part (af fjórum) ég á að spila! Þetta verður hörkuspennandi!