2.12.05

Hámenning í Kaupinhafn (og svall í Svíþjóð)!

Í gær söng ég í fyrsta skipti opinberlega með Stöku og gekk bara nokkuð vel. Við sungum á bókmenntakvöldi í Jónshúsi á milli þess sem lesið var upp úr nýjum íslenskum bókum. Sem betur fór var hægt að vera annarsstaðar í húsinu á meðan lesið var því annars hefði ég sofnað, og sennilega hrotið gríðarlega! Ljóðabækur og gras("mat")reiðslubækur halda ekki minni athygli neitt sérstaklega vel.

Annars er ég að fara í svakalegt partý annað kvöld. Það er 1. desember partý í Lundi og ég legg af stað héðan um hádegið, tek lest á Hovedbanegården, þaðan aðra lest til Malmö og svo enn aðra til Lundar (þegar ég er búinn að slæpast aðeins í Malmö fyrst). Svo gisti ég eina nótt hjá Guðrúnu og Jonasi og tek lestina heim daginn eftir. Ég held þetta sé í fyrsta skipti sem ég fer milli landa til að fara í partý!