Jólafrí!!
Ég er kominn í jólafrí!! Síðasti fyrirlesturinn var í dag og það þýðir bara eitt; letikast restina af deginum. Það eina uppbyggilega sem ég hef gert frá því að fyrirlestrinum lauk var að æfa mig aðeins, það er víst betra að koma ekki alveg grænn á tónleikana á laugardaginn. Jú, og kaupa bók og varahlut í húsbíl. Svo flýg ég heim annað kvöld, og nei ég er ekki byrjaður að pakka, það gerir maður síðustu 20 mínúturnar áður en maður æðir út úr húsi. Skipulagsleysið lengi lifi!!

<< Home