21.11.05

Löng helgi +mánudagur búin

Hafið þið vitað jólaglögg með Jaegermeister og viskýi? Slíkur drukkur var framreiddur í kórpartýi Stöku á föstudagskvöldið var (það byrjaði nú sem venjuleg jólaglögg en kórstjórinn komst í blönduna!) og reyndist hafa hin skemmtilegustu áhrif á liðið, sérstaklega þegar Rammstein var bætt við. Ég var kominn heim upp úr sjö, þó má taka það fram að þar sem ég bý úti í sveit (Albertslund fyrir þá sem vilja vita) þá þarf ég að bíða eftir morgunlestunum sem byrja að ganga milli fimm og sex ef ég er í bænum lengur en til miðnættis. Það er að segja ef ég vil ekki borga morð fjár fyrir næturstrætó sem fer ekki einu sinni alla leið. Laugardagurinn var svo tekinn í að læra (maður þarf víst að gera það líka), ég er að kynna mér þyngdarbylgjunema fyrir verkefni í Astonomisk Instrumentering. Sá kúrs verður bæði próflaus og einkunnalaus, bara staðið/fallið, ég hef aldrei tekið svoleiðis kúrs áður. Á sunnudeginum var svo fjögurra tíma kóræfing þar sem ég söng í fyrsta skipti það fræga lag "Ég vil lofa eina þá" eftir Báru Grímsdóttur. Flott músík og ótrúlega merkilegt að syngja allt í einu "Eurovision módúleringu" í íslensku kórverki, kemur mjög skemmtilega út. Ég var raunar ansi rámur á þessari æfingu, hálsbólgan sem var farin ákvað að veita smá mótspyrnu aftur og mig grunar að það hafi heyrst í gegn því kórinn er ekki mjög fjölmennur (7s, 5a, 5t, 5b). Við erum líka að syngja "A hymn to the Virgin" eftir Britten og þar var ég settur í sólókvartett (gaman!!!!) sem syngur á móti kórnum. Eins gott að gera það almennilega. Það eru jólatónleikar 9. des og Litteraturaften í Jónshúsi 1. des svo þetta er allt að skella á. Um leið og æfingin var búin mátti ég svo hlaupa á fullri ferð næstum allt Strikið á enda til að komast í bíó að sjá Harry Potter 4. Myndin er góð og vel þess virði að sjá hana en eins og alltaf þegar gerðar eru myndir eftir bókum sem ég þekki vel finnst mér allt of miklu breytt. Ég veit það þarf að stytta (bókin er á stærð við amerískan ísskáp) en fyrr má nú vera. Hvað ætla þeir þá að gera við næstu bók sem er tvisvar sinnum lengri? Í morgun fór ég svo í fyrirlestur í Particle Cosmology hjá mjög merkilegum Indverja sem segir einn brandara á 10 mínútna fresti. Einn af hverjum fimm er fyndinn. Þess á milli er hann raunar ágætur fyrirlesari svo þetta er allt í lagi.

Upphitaður kjúklingur þegar ég kom heim. Nammnammnammm......:-)