25.11.05

Åh undskyld, jeg troede du var Italianer!

Í dag fór ég í mötuneytið í Rockefeller Komplexinu til að kaupa mér pizzu (13 kr. risasneið, gott verð) í hádeginu. Á pizzunni sem ég sá var eitthvað torkennilegt sem leit út eins og kúrbítur (dragbítur, nábítur..... ojbjakk) svo mér fannst réttast að reyna að komast að því hvað þetta væri áður en ég tæki ákvörðun. Ég náði athygli kokksins sem kom askvaðandi og sagði eitthvað óskiljanlegt hrikalega hratt. Ég gerði ráð fyrir að ég hefði bara ekki heyrt almennilega í honum og bar upp mína spurningu, á dönsku, um hvað þetta torkennilega grænleita (held ég!) á pizzunni væri. Aftur sagði hann eitthvað sem ég skildi enn síður en það fyrsta og svo þegar ég varð eins og spurningarmerki í framan sagði hann: "Åh undskyld, jeg troede du var Italianer!" Hann var semsagt að tala ítölsku en í henni skil ég ekki orð, þ.e.a.s. nema það sé notað í tónlist, og ég hef aldrei séð orð sem lýst gætu skrýtnu grænleitu fyrirbæri á pizzusneið skrifað inn í nótur sem leiðbeiningar um túlkun (það væri þá helst Eric "leikist eins og ostra á hafsbotni" Satie en hann var Frakki og notaði örugglega frönsku í sínum nótum). En það er merkilegt að frá því að ég kom hingað út hafa menn giskað á að ég sé Spánverji, Svíi (aðallega Danir þegar ég tala við þá, þeir koma ekki fyrir sig hreimnum), Grikki og nú Ítali! Áður hefur verið giskað á Portúgal, Frakkland og meira að segja Norður Afríku! Því eins og allir vita eru norrænir menn ljóshærðir og bláeygir.

Þetta skrítna á pizzunni var kínverskur sveppur. Hann var góður.