Hefi eg nú þeytt lúður ákaflega!
Þegar ég kom heim áðan beið eftir mér brúnt umslag. Í því voru nóturnar að fyrsta trompet í sinfóníu nr. 5 eftir Pjotr Tchaikovski sem Hrefna hafði sent mér. Þegar ég opnaði umslagið komst ég að því mér til mikillar ánægju að nóturnar voru meira að segja í tvíriti; bæði skrifaðar fyrir trompet í A (eins og Tchaikovski gekk frá þeim sjálfur) og transpóneraður partur fyrir trompet í B. Það eru kannski ekki allir sem vita það en trompetleikarar gangast margir hverjir upp í því (m.a. ég) að nota ekki transpóneraða parta, þ.e. nota frekar parta skrifaða fyrir trompeta í skrítnum tóntegundum eins og t.d. trompet í A, D, Es, E og jafnvel H (William Tell og Tannhäuser til að nefna tvö dæmi). Þegar tveir trompetleikarar fara svo að metast innbyrðis hvor sé nú meiri garpur (sem gerist furðu oft, samanber gátuna: How do trumpet players typically greet each other? Hi, I'm better than you!) þá kemur fljótlega fram hjá öðrum hvorum eða báðum, "Ég transpónera hvað sem er í huganum, vil ekki sjá transpóneraða parta!" Yfirleitt kemur að þessu strax á eftir metingi um tónhæð, úthald, fingrafimi, tungulipurð, blaðlestur og blástursafl.
Þetta kemur nú raunar ekki bara til af svona metingi því oft eru transpóneraðir partar alls ekki í boði og því ekki um annað að ræða en að reikna þetta í huganum en það getur samt verið fyndið!
*mont hefst* Og svo það komi nú fram þá spilaði ég að sjálfsögðu eftir partinum í A og notaði C trompet (sem er erfiðari transpónering en með B trompet) og á fullri ferð lesið beint af blaði og húsið hristist þegar ég kom að staðnum í fjórða kafla þar sem er merkt "marziale energico con tutta forza" og, og, og..........*mont endar aldrei*.................................................

<< Home