11.11.05

Allt klárt fyrir næstu blokk

Ég var að skrá mig í kúrsa fyrir næstu blokk í skólanum, en hún byrjar eftir helgi. Í síðustu blokk tók ég kúrsana General Relativity & Cosmology og Astrobiology, nú ætla ég að taka Particle Cosmology og Astronomisk Instrumentering. Sá síðarnefndi er (eins og nafnið bendir til) um stjörnusjónauka og aðrar slíkar græjur. Gaman gaman að fikta! Á leiðinni heim lenti ég svo í þvílíkri hellidembu að ég hefði ekki getað blotnað neitt meira þó ég hefði hoppað í síkið eins og íslenskir námsmenn í Danmörku hafa stundað öldum saman. Beint í sturtu þegar ég kom heim!

Það eru til 10 gerðir af fólki, fólk sem telur í binary og fólk sem gerir það ekki.