Kommentagleði!
Ég held ég hafi aldrei lesið bloggsíðu þar sem var hvergi að finna færslu á borð við "veit einhver hvernig maður setur upp [setjið inn kommentakerfi að eigin vali]?" Nú er komið að mér, ég reyndi að setja upp enetation en það virtist ekki virka í fyrstu tilraun, næsta tilraun verður gerð við fyrsta tækifæri. En nú verður farið í bæinn því Guðrún básúna og Jonas eru að koma í heimsókn í siðmenninguna (frá Svíþjóð sko (híhí)). Raunar skil ég hvorki upp né niður í ástæðunni, persónulega myndi ég frekar fara á milli landa til að sleppa frá Sálartónleikum en til að fara og hlusta á þá, en fólk verður að fá að hafa sinn smekk. Svo verður farið út að borða með fullt af Íslendingum í kvöld. Mikið stuð!
ps. Ég bara varð að gera smá grín að Svíum (ekkert persónlegt Jonas!) fyrst ég er nú staddur í Danmörku þar sem Danir og Svíar hafa barist svo oft að það er varla nokkur leið að hafa tölu á því!
ps. Ég bara varð að gera smá grín að Svíum (ekkert persónlegt Jonas!) fyrst ég er nú staddur í Danmörku þar sem Danir og Svíar hafa barist svo oft að það er varla nokkur leið að hafa tölu á því!

<< Home