6.11.05

Það er gaman að vera búinn með jólaprófin í byrjun nóvember!

Ég sit hér á sunnudagskvöldi, klukkan að ganga tólf og mér kemur ekki til hugar eitt augnablik að fara að sofa. Ástæðan; ég á frí alla næstu viku því síðasta vika fór í próf. Blokkakerfið hérna virkar þannig að hver blokk er um 7-8 vikur, svo koma próf, frí í viku og svo næsta blokk. Þetta er fínt kerfi því maður þarf ekki að taka nema tvo kúrsa í einu og getur einbeitt sér almennilega að þeim. Næsta blokk byrjar svo ekki fyrr en eftir viku og lýkur í 2. viku eftir áramót. Þessvegna sit ég hér og skrifa bull (sjá síðustu færslu) með Beethoven 9. í botni. Ég fór nefnilega og keypti mér geisladiska (Beethoven 9., Dvorák 9. og Moldau eftir Smetana, samtals 100 krónur!) í verðlaun fyrir að klára prófin. Mig langaði nú eiginlega meira í Niflungahringinn með Solti að stjórna, en hann kostaði 1300 krónur, aðeins of stór biti að þessu sinni. Kaupi hann bara næst!