8.11.05

Jæja

Nú ættu komment í öllu falli bara að tengjast þeirri færslu sem þau eru skrifuð við. Til þess að sjá möguleikann á því að kommenta þarf að nota tímalinkinn fyrir neðan færsluna, þá kemur upp síða með færslunni einni og þar fyrir neðan sést kommentalinkurinn. Ég er enn að leita að rétta staðnum fyrir kódann en hann finnst örugglega að lokum. En þessar tilfæringar ollu því að aftur hurfu öll gömul komment.

Annars er það helst í fréttum að ég kannast ekkert við þann mann sem horfir út úr speglinum á baðherberginu. Þessi undarlega spegilmynd kemur til af því að áðan var ég heima hjá Sigga og Sigrúnu í mat. Eftir mat var horft á sjónvarp en þar gaf að líta einn af þessum merkilegu "makeover" þáttum (þó ekki Extreme, þessi virtist næstum því normal, engar skurðaðgerðir). Ég man eftir að hafa velt upp þeirri spurningu hvað yrði gert við mig ef ég færi í svona þátt. Skipti þá engum togum að ráðist var á minn úfna og krullaða haus með sléttujárni (ég vissi ekki einusinni að slík apparöt væru til) með þeim afleiðingum að nú er ég slétthærður!! Ekki er þó gert ráð fyrir að þetta ástand verði langlíft því mitt hár hefur alltaf sótt sjálfkrafa í hámarks óreiðu. Það verður forvitnilegt að vita hvort mér verður hleypt inn á kóræfingu annað kvöld ef hárið verður ennþá í þessu annarlega (og trúlega afar óstöðuga) ástandi!