4.11.05

Það hlaut að koma að því

Það eru takmörk fyrir því hversu lengi er hægt að þvælast um á netinu lesandi bloggsíður annara áður en mann fer að langa til að prófa sjálfur. Við látum því bara vaða og sjáum svo til hvort þetta verður ein af þessum síðum sem fer vel af stað en lognast svo út af á nokkrum mánuðum eða hvort ég næ að halda henni eitthvað gangandi.

Nú ætti því að vera hægt (svo lengi sem síðan er uppfærð, og ég lofa engu með það!) að fylgjast með ýmsum uppátækjum mínum í hinu mikla Danaveldi.