Telemann var vondur maður
Þetta er niðurstaðan sem fæst þegar maður reynir að spila trompetkonsert í D-dúr eftir Telemann. Ástæðan er sú að ekki ber á öðru en að tilgangurinn með fyrsta kaflanum (Adagio, mjög stuttur, trompetparturinn er sex línur) sé að drepa einleikarann! Og þá eru tveir kaflar eftir (plús einn með tacet)! Það er ekki mjög fallega gert. Það er bara verst hvað konsertinn er flottur, hann er allt of freistandi!
Telemann er raunar ekki eina illmennið. Stundum gæti maður haldið að í kennslubókum sem tónsmíðanemar eru látnir lesa sé alltaf einn kafli um það hvernig megi ganga af þreytandi hljóðfæraleikurum dauðum, og svo sé bara gengið á röðina: 1. trompet og 1. horn (gera þá fyrst fjólubláa af átökum og ganga svo aðeins lengra), 1. óbó (þriggja mínútna sóló með engum möguleika á að anda), túba (sitja og bíða allt verkið eftir því að fá að spila 14 nótur (Dvorák var snillingur í þessu enda hafði hann góða ástæðu til!), og sama má nota á slagverk). Svo er hægt að láta strengina spila 356.987 nótur á ofsahraða eins sterkt og hægt er, sem enginn heyrir svo því brassið er að sleppa sér á sama tíma! Þetta megi nota ef flytjendur eru farnir að líta of stórt á sig eða fara í taugarnar á tónskáldinu á annan hátt (væla yfir vondu registri, illa skrifuðum pörtum eða of fáum áberandi stöðum).
Það er eins gott að halda tónskáldum góðum:-Þ

<< Home