9.11.05

Linkar

Linkunum mínum fjölgar hægt og bítandi. Ástæðan fyrir að þeim fjölgar ekki hraðar er að ég vil ekki taka sénsinn á að linka á einhvern sem vill svo kannski ekkert láta linka á sig, m.ö.o. vil ég vera viss um að hafa samþykki þess sem ég linka á. Meðal þess sem ég tek sem klárt samþykki er að linkað sé á mig og því er Hildigunnur komin á listann ásamt Hrefnu. Ef einhverjir lesendur vilja endilega að ég linki á þá er lang einfaldast að láta vita í kommentakerfinu (sem virðist vera farið að haga sér eins og það á að gera!).