Ferfalt húrra!
Eg hefi unnið frækinn sigur á treggáfuðu tölvukerfi og sett upp hið merka kommentakerfi enetation. Það hefur að vísu þær aukaverkanir að öll þau vísdómsorð sem rituð voru í gamla kerfið verða að hverfa því til þess að geta sýnt þau þyrftu bæði blogger og enetation kommentin að sjást. Hætt er við að það ylli ruglingsfalli R(F) er stefndi hratt á óendanlegt með stækkandi F þar sem F er fjöldi færslna á síðunni. Ekki vijum við það (divergent föll eru vond) og því fara gömlu kommentin huldu höfði. Rísi sérstakar aðstæður get eg þó beitt mínu óskoraða valdi sem vefmeistari síðu þessarar til að birta þau aftur telji eg góðar og gildar ástæður til.

<< Home