Slappur, latur ofl.
Það er merkilegt hvað kvef og hálsbólga geta gert mann latann. Ég nenni engu í dag (er svo sem þannig séð í lagi því ég á frí í dag) nema hanga í tölvunni. Ég geri kannski eitthvað af viti seinna í dag, það kemur bara í ljós. Ástandið er þó betra en í gær þegar einnig var boðið upp á hita, hausverk og beinverki af bestu gerð auk almenns svekkelsis (skilgreinum almennt svekkelsi...). En ég nenni ekki að kvarta og kveina meira, það er leiðinlegt.
Vissuð þið að líkurnar á því að maður geti skammtasmogið í gegnum hurð án þess að skemma hurðina (eða sjálfan sig!) eru af svipaðri stærðargráðu og líkurnar á því að hvirfilbylur fari í gegnum ruslahaug og smíði Boeing 747? Að því gefnu að í ruslahaugnum sé nægilega mikið af þeim efnum sem þarf í smíðina...

<< Home