13.3.06

Sko til, annað bloggið í dag

Ég er bara búinn að vera nokkuð aktívur í dag miðað við það sem stefndi í í morgun. Ég er búinn að skrifa eitt C forrit (sem krassaði ekki öllu netsambandi, símasambandi, rafmagni, olíudreifingu og reiðhjólum í Danmörku! Húrra fyrir mér!) og lesa allnokkuð um það hvernig maður fer að því að skrifa slík kvikindi án þess að fjandinn verði laus. Raunar vantar mig aðallega góða kennslubók, mér skilst að á netinu eigi að vera hægt að nálgast nokkrar svoleiðis ókeypis (að útprentun frátalinni auðvitað) frá einhverjum háskólaprófessorum með Open Source æði en ég hef ekki fundið neitt sem hentar mér ennþá. Allar tillögur vel þegnar.

Spurning: Hvað er langt, gult og fullkomið?
Svar: Bananach-rúm!