Fyddst 'ér 'etta kaddski fyddid?...
...sagði stóri grái (gáfaði) fíllinn þegar Herra Rugli (sem var hættur að vera ruglaður og orðinn mjög klár) batt hnút á ranann á honum (til að sýna svarið við gátunni: Hvað er stórt, grátt og segir ættu, ættu!?). Þetta sagði hann að sjálfsögðu eftir að hann sagði ættu, ættu! Og hvað með það segir kannski einhver? Jú, ég hef talað afar svipað þessum skemmtilega fíl undanfarna daga. Það hefur að vísu enginn bundið hnút á nefið á mér en það fer ekki mikið loft í gegnum það samt. Þessvegna ætla ég núna að fara upp í rúm og lesa Hitchikers Guide og hlæja nefmæltum hlátri. Góda dótt!

<< Home