Pakki!
Ég var að fá spennandi pakka í pósti. Í þeim pakka var (eins og ég svo sem vissi fyrir) bókin "The Technique of Orchestration" eftir Kent Kennan. Þetta er sjötta útgáfa af bókinni og er með tóndæmum á diski og ýmsu öðru sem við á að éta. Nú verður spennandi að vita hvort ég get lært að orkestrera meðfram stjarneðlisfræði, trompetspili, kórsöng og Stökupartýum. En bókin verður í öllu falli að bíða fram á miðvikudag, ég má ekki vera að því að fara á músíkfyllerí fyrr en cosmologiuprófið er búið.
Í öðrum minna ánægjulegum músíkfréttum er það að mér sýnist á öllu að það sé verið að loka tónlistaræfingaherberginu hér á kollegíinu og á sama tíma kemst ég að því að Silent Brass magnarinn minn virðist vera að bila! Urrr *með horn og hala*. Ég þarf að fara að redda mér æfingaaðstöðu einhversstaðar.

<< Home