Ha, snjór? Hvað er nú það? Eitthvað til að moka af teinum?
Þegar þetta er ritað er alhvít jörð (og raunar himinn og allt þar á milli) í gervöllu Danaveldi. Af þeim sökum liggur lestakerfið nánast niðri vegna ófærðar. Jú, ég hef heyrt um ófærð fyrr en yfirleitt þarf nú meira en 5 cm jafnfallinn snjó til að einhver vandræði skapist af þeim sökum þar sem ég hef hingað til búið. Snestorm(!), ekki nema það þó, þetta er smá él til að kæla á manni nefbroddinn, líka þótt aðeins hreyfi vind! Hí á danska lestakerfið!
Það tók mig einn og hálfan tíma að komast í skólann í morgun og lengri tíma að komast heim aftur.
Það tók mig einn og hálfan tíma að komast í skólann í morgun og lengri tíma að komast heim aftur.

<< Home