18.1.06

Hvað á ég að gera í næstu blokk?

Nú er erfitt val! Eftir að hafa skoðað vandlega alla kúrsa sem í boði eru í blokkum 3 og 4 hef ég ekki fundið nema tvo (einn í hvorri blokk) sem ég er viss um að ég vilji taka. Þá er það spurningin, á ég að taka mjög erfiðan kúrs sem hefur mjög lítið með stjarneðlisfræði að gera (þótt hann sé í sjálfu sér áhugaverður), taka léttan kúrs (um efni sem ég hef engan áhuga á) sem hefur ennþá minna með stjarneðlisfræði að gera eða reyna að fá að gera rannsóknarverkefni fram á vor (sem er eins víst að sé svakaleg vinna) um eitthvað sem ég vel sjálfur? Hmmmmmm...

Og svo er víst ekki seinna vænna að fara að huga að því hvað ég vil rannsaka fyrir mastersritgerð (eða speciale eins og það heitir hér). Ákvarðanir ákvarðanir...