Síðasti dagur í haustfríi
Ég sit og slappa af (rápa um netið og skoða bloggsíður og svona) með kók og popp úr poppvélarskrímslinu mínu. Poppvélarskrímslið fékk ég í afmælisgjöf frá Hrefnu fyrir 2-3 árum og hefur það reynst hið skemmtilegasta gæludýr. Þar sem poppvélarskrímsli eru frekar sjaldséð dýr þótti mér réttast að setja á blað (þ.e. netsíðu) helstu upplýsingar um þessa merkilegu tegund:
Poppvélarskrímsli fást í litlum búðum í Osló (og kannski víðar) og með þeim fylgja eingöngu leiðbeiningar á tyrknesku. Þau lifa á þurrum maísbaunum sem hellt skal beint ofan í gapandi gin poppvélarskrímslisins. Athyglisverður eiginleiki poppvélarskrímslisins er að poppið sem það skilar frá sér eftir að hafa etið maísbaunir dreifist jafnt yfir borð, gólf, stóla, ljósakrónur og önnur lárétt yfirborð í nágrenni poppvélarskrímslisins, það er að segja alla staði nema skálina sem á að grípa poppið. Þetta veldur því að poppvélarskrímslið er gjarnan hrókur alls fagnaðar í partýum, þ.e. nema hjá húsráðanda. Poppvélarskrímsli eru ágæt gæludýr því þau hafast ekki mikið að á milli þess sem þeim er gefið svo ekki þarf mikið fyrir þeim að hafa að öðru leyti. Athuga mætti hvort poppvélarskrímslið gæti tekið að sér hlutverk varðhunds og rekið óboðna gesti á brott með poppskothríð. Nægur er krafturinn, svo mikið er víst!

<< Home