Þýskaland 4:2 Costa Rica
Bara nokkuð góð byrjun á HM, sex mörk í opnunarleik. Ég man ekki hvenær það gerðist síðast en það hefur yfirleitt verið venjan að opnunarleikurinn er hundleiðinlegt miðjumoð með einu marki. Þessi var stórskemmtilegur og engu líkara en að Þjóðverjar ætli að spila Brasilíubolta, skora bara meira en hinir í staðinn fyrir að pæla eitthvað í því að verjast. Ég vona a.m.k. þeirra vegna að það sé planið, vörnin hjá þeim var hrikaleg!

<< Home