2.6.06

Paris, here we come!

Á morgun (eða í dag, fer eftir tímabelti og skilgreiningu á dagsetningum) förum við Guðný til Parísar! Það verður (eins og lesendur geta getið sér til um) alveg ótrúlega skemmtilegt, sérstaklega þar sem tilgangur ferðarinnar er fyrst og fremst að túrhestast sem mest við megum. Það má segja að þetta sé nokkurskonar útskriftarferð því Guðný lauk sínu orgelnámi við Konservatoríið á miðvikudaginn með því að sýna og sanna fyrir bæði áheyrendum og (ekki síður) prófdómurum að hún er algjör SNILLINGUR!

Og í París verður (trúlega) borðað ótæpilega af: ís, löngum snittubrauðum, paté, sniglum, froskalöppum...

Ég efast stórlega um að ég geri verulega vart við mig á meðan við erum í París, tölvan kemur með en ég veit ekki hvort hún verður nokkuð notuð. En ég held það sé alveg óhætt að gera bara ráð fyrir á meðan að það eina í fréttum sé að það sé gaman í París:)