Sumar og sól!
Sól, sól, skín á mig...
Það er sólskin í Danmörku og sér varla fyrir endann á því. Í tilefni af því var haldin grillveisla í gær þar sem orgelnördar og aðrir nördar átu kjúkling (og að sjálfsögðu ís á eftir) af miklum móð, þrátt fyrir að einstaka maður hafi litið undarlega á okkur og sennilega fundist heldur kalt til þess arna. Við vorum nefnilega í skugganum og svo blés aðeins, nóg til þess að glas af rauðvíni fauk um koll og hellti sér yfir buxurnar mínar. En maturinn var góður (og ísinn, namminamminamm!) eins og til stóð.
Heimsmeistaramótið í fótbolta byrjar eftir mánuð, ef einhver skyldi vera að velta því fyrir sér þá er ég byrjaður að telja niður! Hver sýnir leikina á Íslandi, veit það einhver?

<< Home