20.5.06

Tadaaaa!

Hér er ég! Hélduð þið kannski að ég væri hættur? Aldeilis ekki, ég tók mér bara bloggpásu sem varð rúm vika áður en yfir lauk. Ástæðan var kannski aðallega sú að það var alltaf nokkurn veginn það sama að gerast á hverjum degi og í raun ekki neitt sérstaklega fréttnæmt.

Annars er það helst í fréttum að ég er í því að sitja við tölvurnar í skólanum og forrita þessa dagana, ég er að prófa gammablossalíkan sem á að útskýra af hverju sumir þeirra skjóta röntgengeislum eftir gammablossann sjálfan. Eins og þið getið ímyndað ykkur þá hef ég séð dálítið af orðunum "syntax error" undanfarið (Grrrrrrrrr! Reyta hár!). Enn hafa þó engin slys orðið á fólki né tölvubúnaði.