Ferðasagan!
Þá erum við Guðný komin aftur til Danaveldis eftir alveg stórkostlega ferð til Parísar. Það var allt frábært, -Guðný, veðrið, Guðný, hótelið, Guðný, maturinn, Guðný, allt sem við skoðuðum og Guðný eru bara nokkur dæmi um allt það sem samanlagt gerði þessa ferð að þeirri skemmtilegustu sem ég hef nokkurn tímann farið.
Okkar fyrsta verk þegar við höfðum tékkað okkur inn á hótelið á föstudagskvöldið var að hefja leit að einhverju ætilegu. Það fundum við á taílenskum veitingastað þar sem ég fékk í forrétt þessa líka frábæru sæskrímslasúpu, fulla af skelfiski (í skeljum!) ásamt risastórri humarkló! Í aðalrétt borðaði ég svo önd með rauðu karrýi. Morguninn eftir (samkvæmt minni skilgreiningu á morgni) röltum við svo af stað, með mörgum stoppum, þar af tveimur til að kaupa ís, til að skoða St. Sulpice kirkjuna en þar er til húsa orgvél ein mikil. Við skoðuðum einnig Notre Dame kirkjuna (fyrir þá sem ekki vita þá er hún stór, og þar er annað gríðarlegt orgel) og Luxembourg garðinn og eftir hann var haldið í hádegismat (sniglar og sverðfiskur). Eftir nokkuð stefnulaust rölt enduðum við upp á hótelherbergi með bjór og súkkulaði um kvöldið. Á sunnudagsmorgninum fórum við í messu í St. Sulpice þar sem við fengum að heyra hvað orgelið gat í höndunum á Daniel Roth (hann kann alveg að dúndra), svo skoðuðum við Louvre (að utan, geymum innvolsið þar til í vetur), Champs-Elissées, sigurbogann og Eiffelturninn, og lukum deginum með því að fara út að borða (RAAAARE entrecote nautasteik, bara gott) og ganga (næstum alla leið) til baka í frábæru veðri þar sem allar helstu byggingar í París voru upplýstar, Eiffelturninn meira að segja allur í blikkljósum. Mánudagurinn var nánast alger afslöppun, við fórum í kaffi í dönsku kirkjunni þar sem Guðný verður næsta vetur og svo fórum við á tónleika (af skrautlegri gerðinni) um kvöldið. Við keyptum líka nesti fyrir næsta dag, en færa má rök fyrir því að sá dagur hafi verið hápunktur ferðarinnar. Við lögðum snemma af stað með lest til Versailles og eftir að hafa skoðað höllina (sumarbústaðinn!) fórum við út í garðinn. Þar settumst við niður í grasið og höfðum picknik að hætti Lúlla og Mæju fyrir 250 árum; á matseðlinum var langt brauð, franskur geitaostur, spægipylsa, gæsalifur, marmelaði og Bordeaux rauðvín! Algjör snilld! Um kvöldið voru svo tónleikar í Notre Dame þar sem Michael Radulescu þandi orgelið sem mest hann mátti. Mældist leikur hans 5,8 á Richterkvarða og var allskemmtilegur áheyrnar.
Ég hlakka til að koma aftur...

<< Home