20.3.06

Var að skila Skattmann!

Sko mig, ég þurfti ekki einu sinni frest til að skila! Bara búinn og síðasti dagur til að skila ekki fyrr en á morgun! Það var nú ágætt, þá er hættan á að gleyma þessu yfirstaðin í ár:P

En það er ekki þar með sagt að hægt sé að slaka á. Ónei, það er bara næsta skítverk sem er að moka út úr eldhúsinu hér. Það er semsagt mín vika að þrífa eldhúsið sem alltaf lítur út eins og eftir napalmsprengjuárás eða eitthvað þaðan af verra. Hér (og þetta þótti mér all merkilegt að uppgötva) gengur nefnilega rúmlega annar hver maður talsvert verr um en ég. Grrrrr...