Páskafrí!
Ég er kominn í fjögurra vikna langt páskafrí eftir að kúrsinn sem ég tók í blokk 3 kláraðist í gær. Honum lauk með því að nemendur kynntu hópverkefni sem voru unnin síðustu tvær vikurnar og eftir það fékk ég að vita að ég hefði fengið "bestået" (eins og raunar allir hinir). Hina mögulegu einkunnina getið þið sennilega giskað á. Svo nú skal skrifað um gammablossa, forritað í C, orkestrerað, sungið og þeyttur lúður næstu vikurnar!

<< Home