Allabaddarí fransí...?!??!??!
Þá er ég kominn aftur til Danaveldis eftir menningarreisuna til Parísar. Ég geri ráð fyrir að allir séu sammála því að það sé mjög menningarlegt að skoða Louvre (tvisvar, og sjá samtals um 2% af safninu), fara upp í Eiffelturninn (alla leið í þetta skipti), fara í catacomburnar undir París (DRAUGALEGT!!) og skoða eldgamlar miðaldakirkjur. Sömuleiðis lít ég svo á að augljóslega sé mjög menningarlegt að borða ís, sæskrímslasúpu (hún var góð), ís, snigla, ís, nautasteik, ís, creme brulée og ís. Það sem ég veit ekki hvort telst menningarlegt er að kaupa alvöru (beitt!) samourajasverð en ég gerði það nú samt! Það er þá engin undankomuleið lengur, ég verð að læra almennilega hvernig á að beita slíku tóli, annars er ekkert kúl að eiga það til. Og svo var Trumpet Voluntary eftir Purcell (í alvöru eftir hann!) og Te Deum eftir Charpentier þrumað yfir lýðnum í fjölskyldumessu í dönsku kirkjunni í París og létu tilheyrendur vel af flutningnum. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi hlotið varanlegan heyrnarskaða þrátt fyrir að hvorki Guðný né undirritaður hafi á nokkurn hátt haldið aftur af orgvél ellegar þokulúðri. Og þá er bara að fara að æfa fyrir næsta skipti sem ég fer til Parísar, ég verð að halda orðsporinu!
Það eru bara 26 dagar þar til Guðný kemur að heimsækja mig til Köben:)
Það eru bara 26 dagar þar til Guðný kemur að heimsækja mig til Köben:)

<< Home