Eg hefi unnið frækinn sigur!
Eftir þriggja daga baráttu hefur mér tekist að setja upp á tölvunni minni allt það skemmtilega dót sem þarf til að fá einhvern botn í mæligögn frá Swift gervitunglinu, hvers hlutverk það er að nema gammablossa og fylgjast með þeim af mikilli nákvæmni. Þetta kostaði mikið brölt í Linux, loggaður inn sem root, en það getur haft afar skrautlegar afleiðingar ef maður gerir eitthvað vitlaust. Það gerði ég ekki svo tölvan mín er enn á lífi! Til dæmis skrifaði ég ekki rm -rf neðst í filesysteminu eins og ákveðinn íslenskur stjarneðlisfræðingur afrekaði fyrir nokkrum árum...

<< Home