Ég hlakka til!
Í dag eru tvær vikur þar til ég fer til Parísar:) Ég er búinn að telja niður frá því ég pantaði farið og er orðinn frekar spenntur! Meðal þeirra staða sem stendur til að heimsækja eru górillusýning á Champs Élysses (hvernig sem á nú að skrifa það...) og thaílenskur veitingastaður sem selur sæskrímslasúpu.
Af verkefninu er það að frétta að ég er að verða búinn að læra á forritið sem ég þarf að nota en hef þurft að gera allt í minni tölvu hingað til því tölvurnar í vinnuherberginu sem ég hef aðstöðu í eru í svo algjöru rugli að það er ekki einusinni hægt að logga sig inn. Þetta hefst upp úr því að nota Machintosh í alvöru tölvuvinnu...
Áfram Linux!

<< Home